79 af stöðinni
79 af stöðinni er kvikmynd frá 1962 sem er byggð á samnefndri skáldsögu Indriða G. Þorsteinssonar þar sem lýst er þjóðfélagslegum aðstæðum á Íslandi eftirstríðsáranna og hvernig sveitamanninum gengur að festa rætur í borginni. Í myndinni segir frá tregafullum kynnum Ragnars sem er nýfluttur á mölina til að starfa sem leigubílstjóri og hinnar dularfullu en óhamingjusömu borgarstúlku Gógó. Ragnar kynnist Guðríði Faxen, sem á mann á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn. Hún hefur mikil áhrif á Ragnar og með þeim takast heitar ástir. Sagan gerist laust eftir 1950 og lýsir meðal annars lífinu í Reykjavík á þessum tíma, félögum Ragnars á bílastöðinni og kynnum af bandaríska varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli.
- Ár: 1962
- Land: Iceland
- Genre: Drama, Romance
- Stúdíó: Edda Film (II)
- Lykilorð:
- Leikstjóri: Erik Balling
- Leikarar: Kristbjörg Kjeld, Gunnar Eyjólfsson, Róbert Arnfinnsson, Lárus Ingólfsson, John Teasy, Nína Sveinsdóttir